Félag fagfólks í fjölskyldumeðferð (FFF) hóf fyrir nokkru síðan undirbúning að því að sækja um löggildinu til Velferðarráðuneytis sem heilbrigðisstétt. Fagfólk með framhaldsmenntun í fjölskyldumeðferð starfar nú víða um land í fjölbreyttum störfum. Því miður er hvorki fagheiti né störf þeirra sem vinna á þessu sviði lögverndað eins og staðan er í dag.
Það er mikilvægt að þessu verði breytt enda mun það tryggja betri þjónustu til þeirra sem þurfa á henni að halda og vera um leið ákveðin gæðavottun fyrir þá sem veita slíka þjónustu.
Mikilvægt skref var stigið í þessu löggildarferli 4. maí sl. en þá lauk kosningu félagsmanna FFF um það hvaða fagheiti skuli stefna með í áframhaldandi löggildingarferli. Fagheitið fjölskyldufræðingur var með nokkra yfirburði í þessari kosningu og mun FFF nú róa öllum árum að því að fá þetta fagheiti lögverndað.
Fjölskyldufræðingur – leggðu orðið á minnið!